Krossar ekki settir á leiði nema sérstaklega verði eftir því leitað
Nú er frost á Fróni og fannir í garði segir á heimasíðu Sauðárkrókskirkju og af þeim sökum verða þeir fjölmörgu krossar sem eru í vörslu kirkjugarðsins ekki settir niður, nema sérstaklega verði eftir því leitað. Umræddir krossar eru þó allir í einkaeign og geta eigendur þeirra fengið þá afhenta og séð um að koma þeim fyrir, æski þeir þess. Geymsluhúsnæði kirkjugarðsins er mjög takmarkað og er þess vænst af stjórnendum garðsins að eigendur krossa fjarlægi þá að afloknum jólum og geymi í sínum fórum.
Eins og í fyrra verður innheimt 500 kr. rafmagnsgjald fyrir hvern kross og segir á heimasíðunni að best sé að greiða gjaldið inn á reikning Sauðárkrókskirkju nr. 310 – 26 – 478, kt. 560269 – 7659 og láta koma fram fyrir hvaða leiði er verið að greiða, hver greiðir og senda kvittun í tölvupósti á netfangið: ingvar@fjolnet.is
Einnig er að sjálfsögðu hægt að greiða hjá garðverði henti það betur, en hann mun verða í „efra“ milli kl. 13 og 15 dagana 7., 10. og 11. desember nk.. – Þess utan er hægt að ná sambandi við garðvörð í síma 891 9174 eða með því senda tölvupóst á ofangreint netfang.