Kveikt í áramótabrennu með boga og logandi ör
Indriði R. Grétarsson formaður Bogveiðifélags Íslands ætlar að freista þess að kveikja í ármótabrennunni á Sauðárkróki með boga og logandi ör. Þetta verður reynt í samvinnu við lögreglu, slökkvilið og Björgunarsveitina sem hefur umsjón með brennunni. En til að allt takist sem skyldi þarf allt að ganga upp, að sögn Indriða, - veður, öryggi og annað.
-Það skal tekið fram að við svona verkefni er hugsað fyrst og fremst um öryggið og ef það er eitthvað sem lögreglu, slökkviliði eða mér líst ekki á, þá verður ekki af þessu. En það mun hins vegar ekki koma í ljós fyrr en um kvöldið hvort þetta verði reynt þar sem nokkrir samliggjandi þættir þurfa að vera í lagi, segir Indriði en ef eitthvað er ekki eins og það á að vera þá verður kveikt með gamla laginu með kyndlum.
Að kveikja í brennunni á þennan hátt hefur verið hugmynd hjá Indriða í nokkurn tíma og svo hefur hann fundið fyrir ákveðnum þrýstingi frá öðrum um að prófa þetta og því var ákveðið að skoða þennan valkost. -Líka gaman að prófa eitthvað nýtt og hafa gaman af, segir Indriði.