Kvennasveit GSS sigrar í annarri deild

Sveitakeppni Golfsambands Íslands fór fram nú um helgina og sendi Golfklúbbur Sauðárkróks lið til keppni bæði í karla og kvennaflokki.

Karlarnir fóru í Hveragerði og enduðu í 6 sæti 4. deildar eftir mikla baráttu við náttúruöflin þar sem ofsarigning og rok setti mjög svip sinn á keppnina.

Konurnar voru hins vegar í mun betra veðri á Ólafsfirði, þar sem keppt var í höggleik við 7 aðrar sveitir. Niðurstaðan varð sú að sveit GSS sigraði á 662 höggum. Sveit Golfklúbbsins Odds í Garðabæ varð í öðru sæti á 665 höggum og fylgdi GSS upp í fyrstu deild. í þriðja sæti varð síðan sveit Golfklúbbsins Leynis á Akranesi á 675 höggum.

Sveit GSS skipuðu þær Árný Lilja Árnadóttir, Dagbjört Hermundsdóttir, Ragnheiður Matthíasdóttir, Sigríður Elín Þórðardóttir og Sigríður Eygló Unnarsdóttir. Konurnar spiluðu gott og jafnt golf um helgina sem skilaði þeim þessum frábæra árangri.

/UI

Fleiri fréttir