Kviknaði í eldavél

Í hádeginu í dag var slökkviliðið á Sauðárkróki kallað að húsi í Hlíðarhverfi en þar hafði kviknað eldur í tengli eldavélar. Þegar slökkvilið kom á vettvang var eldurinn dauður en reykræsta þurfti íbúðina.

Samkvæmt lögreglunni á Sauðárkróki fór betur en á horfðist í fyrstu og engin meiðsli urðu á fólki.

Fleiri fréttir