Kynning á barna- og unglingastarfi hestamannafélaganna

Barna- og unglingastarf hestamannafélaganna í Skagafirði; Léttfeta, Stíganda og Svaða, verða með kynningu á vetrarstarfinu og taka á móti skráningum í Tjarnabæ miðvikudaginn 16. janúar kl. 18.  

Áætlað er að vikulega kennslan hefjist þriðjudaginn 22. janúar þar sem þátttakendum verður skipt í hópa og helgarkennslan laugardaginn 26. janúar.  Námskeiðsgjald verður það sama og á síðasta ári.

Á heimasíðu Léttfeta segir að vikulega starfið er fyrir lengra komna (val um 1x til 2x í viku) og kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum í 10 vikur frá kl. 17:00. Helgarstarfið er fyrir byrjendur og lítið vana, einnig eru þeir velkomnir sem ekki komast á virkum dögum en kennt verður 5 helgar

Skiptimarkaður á reiðfatnaði verður á kynningunni í Tjarnabæ en þeir sem hafa áhuga á að skipta út fatnaði eru beðnir um að koma með fötin á skiptimarkaðinn. „Merkið fatnaðinn ykkur, síma og verðhugmynd ef eitthvað týnist. Markaðurinn er í ykkar umsjá,“ segir á heimasíðunni.

Einnig verður boðið upp á pizzur og eru þeir sem hafa áhuga á að fá sneið beðnir um að láta Möggu og Stínu vita fyrir hádegi á miðvikudag, í síma 894 7558 eða 847 2685.

 

Fleiri fréttir