Lærbrotnaði í reiðhjólaslysi

Mildi var að ekki fór verr þegar 10 ára drengur á Sauðárkróki lærbrotnaði er hann missti stjórn á reiðhjóli sínu og hafnaði á járnhliði við Árskóla í morgun. Drengurinn var með hjálm sem eflaust hefur bjargað miklu, að sögn Óskars Björnssonar skólastjóra.

Pilturinn var á leið niður brekkuna sem liggur frá Hlíðarhverfi niður á Skagfirðingabraut á það miklum hraða að hann náði ekki að beygja inn á bílaplanið við skólann eins og hann ætlaði að gera. Hafnaði hann á hliðinu sem stóð opið með þeim afleiðingum að hann lærbrotnaði.

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem slys verða við skólann út af brekkunni en á síðasta ári slasaðist drengur sem kom niður brekkuna á miklum hraða og hafnaði á bíl.

Brekkan er löng og aflíðandi og er hægt að ná miklum hraða niður hana ef það er ætlunin, en eins og dæmin sanna getur verið mjög hættulegt.

Notum hjálma á hausinn, hann er þess virði.

Fleiri fréttir