Lásu ljóð og sungu fyrir heldri borgara á Löngumýri

Nemendur í 7. bekk Varmahlíðarskóla fóru ásamt kennurum í gönguferð niður á Löngumýri eftir hádegi sl. þriðjudag og hittu þar eldri borgara sem hittast þar. Nemendurnir lásu ljóð sem þau æfðu fyrir Stóru upplestrarkeppnina og spiluðu á hljóðfæri. Sömuleiðis sungu þau Vikivaka Valgeirs Guðjónssonar með Gunna Rögnvalds sem þau æfðu snarhendis.

Ungir sem aldnir voru ánægðir með þennan hitting og kvaddi Helga Bjarnadóttir hópinn með þeim orðum að eldri borgarar vonuðust eftir fleiri slíkum heimsóknum á vetri komanda,“ segir á heimasíðu Varmahlíðarskóla.

Fleiri fréttir