Lásu rúmlega 82.000 síður í sumar
Viðurkenningar fyrir Sumarlesturinn 2012 voru veittar í Varmahlíðarskóla á dögunum en alls tóku 50 nemendur skólans þátt og lásu rúmlega 82.000 blaðsíður.
Á heimasíðu Varmahlíðarskóla segir að allir sem tóku þátt hlutu viðurkenningar og sá bekkur sem stóð sig best í heild fær að auki peningaupphæð úr skólablaðssjóði til ráðstöfunar í samráði við umsjónarkennara. Á myndasíðu Varmahlíðarskóla má sjá fleiri myndir frá þessu.