Laufey Harpa valin í æfingahóp U23

Laufey Harpa (fyrir miðri mynd) að loknum síðasta leik sínum með liði Tindastóls sl. haust. MYND: ÓAB
Laufey Harpa (fyrir miðri mynd) að loknum síðasta leik sínum með liði Tindastóls sl. haust. MYND: ÓAB

Blásið hefur verið lífi í ágæta heimasíðu Tindastóls og þar segir frá því að Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðisins í fótbolta, hefur valið hóp U23 ára leikmanna til æfinga sem fram fara dagana 24.-26. janúar í Hafnafirði. Einn Króksari er í hópnum en það er Laufey Harpa Halldórsdóttir sem skipti úr Tindastól í Breiðablik í desember og gerði tveggja ára samning við Blikana.

Laufey Harpa hefur verið lykilmaður í liði Tindastóls undanfarin ár en hún á að baki 119 leiki fyrir Tindastól og 11 mörk og sýnt frábæran stöðugleika í sínum leik.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir