Laufskálahelgin að ganga í garð

Nú er komið að hinni árlegu Laufskálaréttarhelgi í Skagafirði og hefst fjörið í dag með skeiðkappreiðum á vellinum við reiðhöllina á Sauðárkróki kl. 16:00. Keppt verður í 150m og 250m skeiði.

Í kvöld  verður sýning í reiðhöllinni og að venju verður þar margt til að gleðja augað s.s. töltkeppni, stóðhestakynning og skeiðkeppni í gegnum höllina.Vegleg verðlaun eru í boði í skeiðinu þar sem sigurvegarinn fær kr. 60.000.- annað sætið gefur 25.000.- og þriðja sætið kr. 15.000.-. Það má því búast við að það verði kátt í höllinni í kvöld.

Fleiri fréttir