Leiguverð íbúða Svf. Skagafjarðar breytast
Endurskoðun hefur verið gerð á húsaleigu fasteigna sveitarfélagsins Skagafjarðar en undanfarin misseri hafa leigusamningar einungis verið gerðir til sex mánaða í senn, svo réttur leigjenda til húsaleigubóta tapaðist ekki. Sveitarstjórn hefur samþykkt nýjar reglur um húsnæðismál sem farið verður eftir við endurnýjun eldri leigusamninga og við gerð nýrra.
Samkvæmt heimasíðu Svf. Skagafjarðar er með þessum aðgerðum verið að færa leiguverð íbúða sveitarfélagsins nær því sem gerist á almennum markaði í sveitarfélaginu. Gera má ráð fyrir að í einhverjum tilfellum verði hækkunin töluverð, en á móti kemur að réttur þeirra sem leigja á s.k. félagslegum forsendum verði skýrari, segir á síðunni en hafa ber í huga að húsaleigubætur hækka á móti hjá þeim sem þann rétt eiga. Greint er á milli almennrar leigu og félagslegrar leigu.
Í reglunum er almenn húsaleiga fyrir hvern fermetra ákvörðuð kr. 950 en hámark almennrar mánaðarleigu er kr. 112.500. Þeir leigjendur sem uppfylla skilyrði sem þarf til félagslegrar leigu, leigja fermetrann á 20% lægra verði, kr. 760. Hámark þeirrar leigu er kr. 90.000 á mánuði.
Sjá nánar HÉR