Leik Tindastóls og Skallagríms frestað
Búið er að fresta leik Tindastóls og Skallagríms sem vera átti í kvöld vegna slæms veðurs og ófærðar. Á heimasíðu Tindastóls segir að ekki hafi enn verið fundinn nýr leiktími, og líklega ekki hægt að spila leikinn fyrr en 22. nóvember í fyrsta lagi þar sem margir leikir eru framundan bæði í Íslandsmóti og Lengjubikar á leikdögum efstu deildar.
Næsti leikur Tindastóls verður syðra gegn Fjölni í Lengjubikarnum sunnudaginn 4. nóvember. Stuðningsmenn sunnan heiða eru hvattir til að mæta í Dalhús í Grafarvogi og styðja strákana til sigurs en heimamenn geta komið saman á Mælifell þar sem leikurinn verur sýndur beint.