Leik Tindastóls og Stjörnunnar frestað fram á morgun
Búið er að fresta leik Tindastóls og Stjörnunnar í Lengjubikarnum sem átti að fara fram í kvöld í Garðabæ þar sem Stólarnir sitja fastir í snjónum nyrðra. Leikurinn mun þess í stað fara fram á morgun kl. 19:15 í Ásgarði íþróttahúsi þeirra Garðbæinga.
Á Karfan.is segir Stjarnan og Tindastóll eigi bæði kost á því að komast upp úr riðlinum en til að Stjarnan komist upp verður liðið að vinna 16 stiga sigur eða meira. Allt annað og Tindastóll kemst áfram.
Leikurinn á morgun verðu sýndur á Tindastóll-TV