Leikfélag Sauðárkróks óskar eftir mannskap

„Langar þig að leika, sauma, sminka, hvísla, tæknast, proppast eða hvað annað sem þarf til að koma leiksýningu á fjalirnar???“ er spurt í auglýsingu frá Leikfélagi Sauðárkróks í nýjasta eintaki Sjónhornsins.

„Þá er um að gera að mæta á fyrsta fund Leikfélags Sauðárkróks fyrir haust leikritið 2012,“ heldur áfram í auglýsingunni en hann verður haldinn í Leikborg sunnudaginn 16. september kl. 20.

Bent er á að mikilvægt er að mæta á fund eða láta heyra í sér fyrir fund til að sjá hversu stór hópurinn er sem ætlar að vera með. Þeir sem vilja vera með en geta ekki mætt á fundinn geta haft samband við formann LS, Sigurlaugu Dóru í síma 862 5771, fyrir fundinn.

Athugið að í auglýsingu í Sjónhorninu kemur fram að kynning verði á Sæluvikuleikritinu á fundinum en einungis er um haustverkefnið að ræða.

Í Leikfélagið er 16 ára aldurstakmark.

Fleiri fréttir