Leikfélagið stendur fyrir grímudansleik
Það má búast við skrautlegri samkomu á morgun á Mælifelli en Leikfélag Sauðárkróks stendur þá fyrir grímuballi sem hefst klukkan 23:00 en það verða Greifarnir sjálfir sem sjá um stuðið. Verðlaun verða veitt fyrir flottustu búningana svo það er um að gera að klæða sig eftir einhverju öðru en nýjustu tísku. -Þeir sem mæta ekki í búning fá samt sem áður inngöngu en auðvitað er skemmtilegra ef allir finna eitthvað bara svona upp á stemminguna, segir Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir formaður leikfélagsins.
-Húsið opnar kl. 23 og er fordrykkur í boði til miðnættis og brjáluð tilboð á barnum til klukkan 01 og því hvetjum við fólk til að mæta bara þegar húsið opnar, segir Sigurlaug og bætir við: Miðaverð er aðeins 2000 kr. sem er ekki mikið fyrir fordrykk, tilboð á barnum og gott ball.
Hægt að fylgjast með aðdraganda viðburðarins á Facebooksíðu LS