Leikmaður Hauka gisti sjúkrahúsið á Króknum vegna hnetuofnæmis

Sagt er frá því á Fótbolti.net að einn leikmanna Hauka, Hilmar Rafn Emilsson, hafi eytt nóttinni á sjúkrahúsinu á Króknum en eftir leik Tindastóls og Hauka á laugardaginn þurfti hann á sjúkrahús í flýti vegna hnetuofnæmis.

Haft er eftir Hilmari Rafni: -Ég er með bráðaofnæmi fyrir hnetum, það hefur smitast eftir að ég drakk úr vatnsbrúsa eða eitthvað svoleiðis. Ég byrjaði að bólgna upp í augunum, andlitinu og síðan fann ég að hálsinn var farinn að þrengjast þannig að ég fór upp á spítala að fá einhverjar adrenalín og sterasprautur.-

Hilmar Rafn gisti á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki um nóttina.

-Ég var kominn upp á sjúkrahús korteri eftir leikinn og síðan þurfti ég að vera þarna yfir nóttina. Þetta var hörkustuð, ég var ásamt tveimur gömlum konum þarna á sjúkrahúsinu.-

Heimild: Fótbolti.net

Fleiri fréttir