Létt og blúsuð kvöldmessa og sunnudagaskóli
Á morgun sunnudaginn 25. nóvember verður sunnudagaskólinn á sínum stað í Sauðárkrókskirkju kl.11. Umsjón hafa þær Guja og Fanney Rós og Rögnvaldur spilar á píanóið. Um kvöldið verður svo létt og blúsuð kvöldmessa kl. 20:00.
Á heimasíðu kirkjunnar segir að tvær alþýðlegar söngkonur úr Skagafirði, Íris Olga Lúðvíksdóttir kennari og Margrét Arnardóttir námsráðgjafi munu syngja velþekkta sálma við undirleik Rögnvaldar Valbergssonar. Honum til fulltingis verða bræðurnir geðþekku, Jóhann og Margeir Friðrikssynir. Verið velkomin til kirkjunnar, segir sóknarprestur í lokin.