Lífið heldur áfram

Á Fésbókarsíðu sem stofnuð var til styrktar fjölskyldu Friðriks og Bjarnhildar sem sitja föst í Kólumbíu með ættleiddar dætur sínar, er ný færsla sem heitir Lífið heldur áfram. Þar segir að nýliðinn júnímánuður hafi verið þeim sá erfiðasti í lífi þeirra, en hann sé sem betur fer búinn og vonandi bjart framundan. Dómarinn sem haldið hefur máli þeirra í gíslingu þar ytra hefur loksins látið það til „hæstaréttar“ í Medellin.

- Núna erum við að bíða eftir því hvort „hæstiréttur“ taki við málinu eða ekki. Við vitum ekki hvað það tekur langan tíma, en okkur hefur verið sagt að málið geti tekið 4 - 5 mánuði í þessum rétti. Einnig hefur okkur verið sagt að málið okkar geti auðveldlega tekið 1 ár hérna úti í viðbót.... þetta verður víst bara að koma í ljós, segir á síðunni.

-Við erum óendanlega þakklát ykkur öllum kæra fjölskylda og vinir fyrir allan stuðninginn. Það sem skiptir okkur öllu máli er að geta verið hérna úti með litlu stelpunum okkar og ætlum við að gera allt sem við getum til að vera hérna úti með þeim jafnvel þótt það kosti okkur aleiguna því án þeirra eigum við hvort sem er ekki neitt sem skiptir máli.

Allar líkur eru á því að þau Friðrik og Bjarnhildur fái að vera með stelpurnar hjá sér meðan málið fer í gegnum allt ferlið en í landinu er prógram sem kallast „friendly home“ og gengur út á það að börn fái að vera hjá þeim sem þeim líður best hjá og er hægt að fara fram á þetta ef þau þurfum að fara fyrir fleiri dómsstóla.

-Við reynum að vera flesta daga í rútínunni okkar og erum við að reyna að byrja að njóta okkar aftur, það þýðir víst lítið annað því við yrðum sturluð að hugsa alla daginn um það versta sem gæti gerst. En ef það er til Guð þá á þetta eftir að enda allt saman vel og förum við öll saman heim til Íslands að lokum.

Sjá Facebooksíðu Föst í Kólumbíu

Fleiri fréttir