Líklegt að eldislax hafi veiðst í Vatnsdalsá
Líkur eru taldar á að eldislax hafi veiðst í Hnausastreng í Vatnsdalsá sl. föstudag. Greint er frá þessu á mbl.is á laugardag og rætt við Björn K. Rúnarsson, leigutaka og staðarhaldara í Vatnsdalsá.
Laxinn sem um ræðir er 70 sm hrygna og segir Björn að ummerki á laxinum bendi til þess að augljóslega sé um eldislax að ræða. „Þessi fiskur er uggaskemmdur. Bakugginn er ónýtur, eyruggarnir eru skemmdir og sporðurinn snjáður. Snoppan er líka skemmd á honum. Ekki neitt illa en þetta er alveg greinilega eldislax,“ segir Björn.
Ljóst er að sé um eldislax að ræða hefur hann þurft að fara langa leið til að komast alla leið í Hnausastreng þar sem ekkert fiskeldi er í nágrenninu. Björn segir því sé greinilegt að fiskurinn geti ferðast víða.
„Þetta er hættulegt fyrir íslenska náttúru, eiginlega bara hryðjuverk. Það er búið að sanna sig um allan heim að alls staðar þar sem fiskeldi er þá hrynja laxastofnar niður. Það hefur bara sýnt sig,“ segir Björn í samtali við mbl.is og lýsir yfir áhyggjum af því að fleiri eldislaxar séu á ferðinni og segir lítið annað hægt að gera en að fylgjast með því hvort fleiri slíkir fiskar veiðist í ánni.
Reynist grunur Björns réttur er hér um að ræða fjórða eldislaxinn sem veiðst hefur í íslenskum ám í sumar en Morgunblaðið greindi frá því á laugardag að staðfest hafi verið eftir rannsókn Hafrannsóknastofnunar að þrír laxar sem veiddust í Laugardalsá í Ísafjarðardjúpi, Selá í Skjaldfannardal og Staðará í Steingrímsfirði hafi verið eldislaxar.
Á vef Hafrannsóknastofnunar segir: „Þessi fjöldi eldislaxa í ám á þessum svæðum, er í samræmi við það sem áhættumat um erfðablöndun gerir ráð fyrir miðað við núverandi umfang sjókvíaeldiseldis hér við land. Hlutfall eldislaxa í þessum ám er, miðað við þennan fjölda laxa, vel undir þeim mörkum að erfðasamsetningu villtu stofnanna sé hætta búin."
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.