Líst illa á breytt rekstrarfyrirkomulag SKV
Páll Pálsson veitustjóri á Sauðárkróki mun nú um mánaðarmótin hefja nýjan kafla í sínu lífi er hann lætur af störfum hjá Skagafjarðarveitum, en hann hefur átt farsælan feril hjá fyrirtækinu allt frá því hann hóf störf hjá Hita- og vatnsveitu Sauðárkróks 1980. Páll er í aðalviðtali í Feyki og segir frá veru sinni á Króknum, verkefnum veitnanna og áhugamálum.
Páll greinir í viðtalinu frá viðamiklum verkefnum Veitnanna í gegnum tíðina og er óhætt að segja að mikið hefur áunnist við að hitaveituvæða Skagafjörð og enn er verið að skoða mögulegar framkvæmdir á því sviði.
Nú í sumar ákvað sveitarstjórn Skagafjarðar að breyta stjórnskipulagi hjá sveitarfélaginu og er einn liður í því að breyta rekstrarformi Skagafjarðarveitna úr hlutafélagaformi og reka sem einingu innan sveitarfélagsins eins og áður var. Páli líst ekkert sérstaklega vel á þær ráðagerðir og telur hann tillögur veitustjórnar sem lagðar voru fyrir byggðaráð Skagafjarðar um að sameina allar veitur sveitarfélagsins undir Skagafjarðarveitur ehf. betri.
–Það er spurning hvað menn fá út úr því. Ég hef reynslu af þessu fyrirkomulagi og man þegar mikill hluti tekna veitnanna runnu í bæjarsjóð til verkefna sem komu þjónustu veitnanna ekkert við. Veiturnar eru þjónustufyrirtæki, hver veita með afmarkað svið, segir Páll og telur að hagkvæmnisjónarmið og framkvæmdaþátturinn verði ekki sá sami og ef hlutafélagsformið væri áfram við líði.