Ljósakrossar á leiði í Hólakirkjugarði

Í kirkjugarði Hóladómkirkju hefir nú verið settur upp tenglastólpi fyrir ljósakrossa á leiði, en fram að þessu hafa aðstandendur, sem sett hafa lýsingu á leiði ástvina sinna, þurft að koma með rafgeyma sjálfir. Er það von sóknarnefndarinnar að fólk nýti sér þessa löngu tímabæru þjónustu.

Þeim, sem hyggjast gera það, er bent á að hafa samband við Gunnar Óskarsson í síma 8991293.  Ekki verður tekið gjald fyrir lýsinguna að svo stöddu.

Sóknarnefndin vill þakka þorrablótsnefnd Hóla og Viðvíkurhrepps  2012 fyrir rausnarlegan stuðning við kaup og uppsetningu tenglastólpans, en ágóðinn af síðasta þorrablóti var látinn renna til þessa verkefnis.

Fleiri fréttir