Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar
Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn bjóða til Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk 2011-2012. Lokahátíð keppninnar verður haldin í sal bóknámshúss Fjölbrautaskóla NV þann 20. mars, kl. 17:00.
Markmið upplestrarkeppni í 7. bekk grunnskóla er að vekja athygli og áhuga á vönduðum upplestri og framburði í skólum, segir á heimasíðu Radda. Keppnin í sjálfu sér er í rauninni aukaatriði og ekki á að einblína á sigur.
„Mestu skiptir að kennarar nýti þetta tækifæri til að leggja markvissa rækt við einn þátt móðurmálsins með nemendum sínum, vandaðan upplestur og framburð, og fái alla nemendur til að lesa upp, sjálfum sér og öðrum til ánægju. Stefnt skyldi að því að allur upplestur í tengslum við keppnina sé fremur í ætt við hátíð en keppni. Þetta á ekki síst við um lokahátíð keppninnar,“ segir á heimasíðu Radda
Gestir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.