Lokasýning Stellu í orlofi í kvöld
Lokasýning Leikhóps NFNV á leikritinu Stellu í Orlofi eftir Guðnýju Halldórsdóttur verður í dag kl. 20:00 í sal Bóknámshúss FNV. Að sögn Elísu Björk Einarsdóttur Forseta NFNV hafa viðtökurnar verið mjög góðar. „Fólk fer mjög ánægt út úr húsi og með bros á vör, mér finnst það líka ekki skrýtið þetta er svo fyndið leikrit að maður er hlæjandi allan tímann,“ sagði Elísa.
Leikstjórn er í höndum Sigurlaugar Vordísar Eysteinsdóttur og tónlistarflutningur er í höndum nemenda undir stjórn Reynis Snæs Magnússonar.
Verð fyrir nemendur í NFNV og 16 ára og yngri er 1500 kr. en 1900 kr. fyrir aðra. Hópafsláttur er veittur fyrir 10 eða fleiri ef pantað er fyrirfram. Pöntunarsími er s. 455 8070 en hægt er að hringja á milli kl. 16-18.