Lömbin vel þokkaleg í Stafnsrétt - myndband
Eins og víðast hvar á landinu var réttað í Stafnsrétt í Svartárdal um síðustu helgi í ágætis veðri. Það var ekki eins gott dagana þar á undan þar sem gangnafólk hreppti leiðindaveður á Eyvindarstaðarheiðinni og virtist vera sama í hvaða átt var farið að sögn eins þeirra.
Á leiðinni að Hofsjökli fékk gangnafólkið vindinn í fangið sem gerði leitir erfiðar en það sem gerði gæfumuninn var að flogið var yfir svæðið áður en göngur hófust svo vitað var hvar kindurnar héldu sig. Náðust þær allar fyrir utan eina sem ekki fannst. Þrátt fyrir norðan garg og úrkomu smalaðist þokkalega af heiðinni og var það mat manna að lömbin hafi komið vel þokkaleg til byggða.
http://www.youtube.com/watch?v=dE-t-X8BpRI