Löndunartölur við Skagafjarðarhafnir

Nóg var um að vera í höfnum Skagafjarðar í síðustu viku. Á heimasíðu Skagafjarðarhafna kemur fram að á sunnudag í síðustu viku lönduðu Þinganes SF-25 og Friðrik Sigurðsson ÁR-17 smá slöttum af rækju og bolfiski á Sauðárkrókshöfn en þeir komu inn vegna brælu, sem og Röst SK-17. 

Þinganes var með 6,6 tonn af bolfiski og 2,4 tonn af rækju, Friðrik Sigurðsson var með 7,6 tonn af rækju og 500 kíló af bolfiski. Röst landaði 2,3 tonn af rækju á mánudeginum sem og Klakkur SK-5 sem var með 95,7 tonn af þorski og 6 tonn af öðrum tegundum, sem og 7 tonn af þorsklifur.

Þá landaði Málmey SK-1 67,7 tonnum af unnum afurðum en skipið er viðgerðarstoppi þessari viku. Hafborg SK-54 hefur landað í tvígang samtals 3,7 tonnum sem fengust í net.

Á Hofsósi lönduðu tveir bátar sl. miðvikudag og þrír bátar á fimmtudag samtals 36 tonnum. „Voru þetta bátar frá Siglufirði sem leituðu inn á fjörðinn vegna brælu og þetta var útkoman,“ segir á heimasíðunni en þetta var að megninu til ýsa sem fékkst skammt undan höfninni á Hofsósi.

Á fimmtudag og föstudag var flutningaskipið Vestlandia við Sauðárkrókshöfn og var skipað upp 638 tonnum af salti fyrir Loðskinn. Hélt skipið síðan för sinni áfram eftir hádegið á föstudag.

 

Fleiri fréttir