Losuðu Þjóðverja sem sátu fastir

Björgunarsveitarmenn úr björgunarsveitum frá Skagafirði og Húnavatnssýslu losuðu fimm Þjóðverja á tveimur bílum úr sandbleytu á Eyfirðingaleið, slóða út frá Kili, um kl. 4 í nótt. Samkvæmt heimildum Mbl.is amaði ekkert að fólkinu og hélt það sína leið að björgun lokinni.

Ingimundur Ingvarsson, í svæðisstjórn björgunarsveita í Skagafirði, sagði í samtali við Mbl.is að greiðlega hafi gengið að losa fólkið þegar að var komið í nótt en aðstoðarbeiðnin barst um miðnætti.

Sendir voru sex bílar frá björgunarsveitunum með 25 manns meðferðis en á heimasíðu Landsbjargar segir að ferðafólkið hafi verið á trukkum; annar þeirra vegur 7,5 tonn og hinn 4,5 tonn og því þurfti að freista á þess að nota alla björgunarsveitabílana í einu til að spila upp þessa þungu trukka.

 „Fólkið hugðist aka slóða frá Kjalvegi yfir í Ingólfsskála en lenti í ógöngum á leiðinni. Veður var gott á svæðinu. Ferðafólkið var allan tímann í símasambandi en þótt það væri ekki í bráðri hættu var ákveðið að komast að því í nótt því ár geta grafið undan bílum sem sitja fastir og þá er voðinn vís,“ segir á Mbl.is.

 

Fleiri fréttir