Lukkan var í liði með beinskeyttum Breiðhyltingum

Tindastóll fékk ÍR í heimsókn í gær á Sauðárkróksvöll og var spilað við ágætar aðstæður, glampandi sól en nokkuð spræka hafgolu. Leikurinn var ágæt skemmtun þó heldur hafi þyrmt yfir stuðningsmenn og leikmenn Tindastóls þegar líða fór á síðari hálfleikinn, enda sigur gestanna helst til ódýr. Lokatölur urðu 2-4 eftir að Stólarnir höfðu 2-0 forystu í hálfleik.

Tindastólsmenn höfðu hafgoluna í bakið í fyrri hálfleik en það voru þó gestirnir úr Breiðholtinu sem voru meira með boltann. Verra var fyrir þá að þeir höfðu litla hugmynd um hvað þeir áttu að gera við hann annað en að sparka tuðrunni upp í loftið og það var nú til lítils. Stólarnir voru hins vegar eldsnarpir og gaman að sjá til liðsins í fyrri hálfleik. Þeir pössuðu upp á að miðjumenn ÍR fengu aldrei frið með boltann og hvað eftir annað hirtu þeir boltann af Breiðhyltingum og voru snöggir að skapa hættu með nettu og hröðu spili.

Á 16. mínútu kom fyrsta mark leiksins. Max Touloute pressaði annan miðvörð ÍR leiftursnöggt, stal boltanum og náði að skapa sér færi sem hann kláraði laglega. Aðeins fjórum mínútum síðar unnu Stólarnir boltann á miðjunni og spiluðu honum strax á Ben Everseon sem kom sér laglega í ágætt skotfæri og markvörður gestanna kom engum vörnum við. Staðan 2-0. Eftir þetta voru heimamenn með traustatak á leiknum og áttu nokkra fína möguleika eftir hornspyrnur. Mark var dæmt af Tindastólsmönnum eftir horn en dómari leiksins taldi brotið á markverði ÍR. Síðustu mínútur hálfleiksins jafnaðist leikurinn en varnarmenn Tindastóls áttu ekki í neinum vandræðum með ÍR-inga og heimamenn því kampakátir með stöðuna í hálfleik.

Í síðari hálfleik breyttu gestirnir aðeins til og færðu stjörnuleikmanninn sinn, Nigel Quashie, inn á miðjuna. Þetta virtist litlu breyta fyrst um sinn, Stólarnir fengu 2-3 fín færi til að auka við forystuna en fóru illa með færin og náðu aðeins að skjóta Axel Vignisson markmann ÍR í stuð.

Á 63. mínútu töpuðu heimamenn boltanum illa við miðlínu og Elvar Páll Sigurðsson komst upp kantinn, lék inn á miðjuna og sendi á Quashie sem ógnaði vel og náði síðan góðu skoti í fjærhornið eftir frekar örvæntingarfullan varnarleik Stólanna. ÍR-ingar jöfnuðu síðan 10 mínútum síðar með gulli af marki, Guðjón Gunnarsson fékk boltann á boganum og setti hann í fyrstu snertingu ofarlega í bláhornið. Rangstæðufnykur var af þriðja marki ÍR en eftir klaufaskap í vörn Tindastóls unnu ÍR ingar boltann og sendu inn á markteig þar sem Seb Furness náði ekki að handsama boltann og Davíð Einarsson skóflaði tuðrunni í markið. Stólarnir reyndu hvað þeir gátu til að komast aftur inn í leikinn og fengu ágæta sénsa en það voru gestirnir sem bættu við sínu fjórða marki á 84. mínútu, Elvar Páll Sigurðsson skoraði stöngin inn eftir að hafa sloppið einn inn fyrir eftir háloftaspyrnu. Nú virtist sem öll skot ÍR-inga rötuðu í bláhornið og lukkan sannarlega með gestunum. Fannar Freyr Gíslason var nálægt því að minnka muninn undir lok leiksins en setti boltann í þverslána og lokatölur því 2-4.

Leikurinn var ágætlega spilaður af hálfu Tindastóls en síðasta hálftímann var hálfgerður flumbrugangur á varnarleiknum sem ÍR ingar nýttu sér vel og voru beinskeyttir og snöggir að refsa reynslulítilli Tindastólsvörn. Leikurinn var í heildina jafn en það reyndist Stólunum dýrkeypt að nýta ekki færin sem gáfust í upphafi síðari hálfleiks. Samspil heimamanna var lengstum ágætt og gaman að sjá lagleg tilþrif. Max, Ben og Dominic Furness áttu flotta spretti, sérstaklega í fyrri hálfleik, en heldur dró af þeim eftir hlé. Eitthvað ættu Stólarnir að eiga inni en í liðið vantaði í gær þá Arnar Sigurðsson og Theo Furness.

Fleiri fréttir