Lummudagar settir í Litlaskógi í dag

Lummudagar verða settir með athöfn í Litlaskógi kl. 18 í dag en um er að ræða nýbreytni þetta árið, samkvæmt Sigríði Ingu Viggósdóttur, skipuleggjanda Lummudaga. Þar með hefjast hátíðarhöldin með hverjum viðburðinum á eftir öðrum yfir helgina og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi og skemmt sér.

„Lummudagar eru kannski svolítið frábrugðnir öðrum bæjarhátíðum þar sem við erum ekki að eyða neinum peningum í hana heldur notum við það bráðskemmtilega fólk sem við eigum hér til þess að skemmta okkur,“ segir Sigríður Inga.

Eftir setningarathöfnina í Litlaskógi verður farið í leiki og svo mun FISK bjóða upp á fiskisúpu kl. 19. „Síðan njótum við þess að vera saman og syngjum nokkur lög,“ segir Sigríður Inga.

Í kvöld verða GRM með tónleika á Mælifelli kl. 21 og Ásdísi Guðmundsdóttir og Fúsi Ben ætla að leika lög frá öllum heimshornum í Menningarhúsinu Miðgarði, en þeir tónleikar hefjast einnig kl. 21.

Morgundagurinn, föstudagur, segir Sigríður Inga einkennast af leikjum og skemmtilegheitum. „Sápufótbolti verður í Ártúninu, ratleikur sem Skátarnir standa fyrir hjá sundlauginni og 3á3 götukörfuboltamót við Árskóla. Svo má ekki gleyma götugrillinu,“ segir hún.

Njóta þess að vera saman, skemmta sér og öðrum

„Á laugardaginn verður steikjandi hiti og sól og þvílík götumarkaðsstemming á Skagfirðingabrautinni og Aðalgötunni. Bílaklúbbur Skagafjarðar verður með kassabílarallý við Ráðhúsið og ef fólk lumar á kassabíl þá er um að gera að taka hann með sér þangað. Bílaklúbburinn skorar líka á fyrirtæki og félagasamtök í bænum að koma og taka þátt í rallýinu,“ segir Sigríður Inga.

„Þá verður einnig  andlitsmálning í boði, fullt af skemmtilegum mörkuðum, flottir Skagfirskir tónlistakrakkar láta í sér heyra, tískusýning frá Jóhönnu Ey, Kaffihús á Kirkjutorginu, Garðyrkjufélag Skagafjarðar mætir með plöntur, Maddömmurnar verða á sýnum stað að gefa lummur, ekki má gleyma heimsfræga hafrakexinu hennar Binníar í Blómabúðinni. Kaffi Krókur og Bakaríið verða í stuði eins og venjulega með sýnar flottu veitingar. Í Gúttó verður lummulegur markaður með Zumba dans og tónlist,“ segir Sigríður Inga.

Markaður verður á Skagfirðingabraut 49 þar sem verður boðið upp á fléttur, skrautsteina og ýmislegt fleira. Einnig verður farið í Lasertag á grasinu milli blokkanna á Skagfirðingabrautinni.

Villtir svanir og tófa verða svo í Bifröst um kvöldið og Paparnir slá svo botninn í dagskránna með stórdansleik á Mælifelli.

„Vona ég að allir finni eitthvað við sitt hæfi og njóti þess að vera saman, skemmta sér og öðrum. Það á alls ekki að vera nein kvöð sem fylgir Lummudögunum, ef fólk nennir ekki að skreyta þá gerir það það bara ekki. En að sjálfssögðu vonast ég til þess að allir njóti þess að vera með og skreyti nú aðeins hjá sér. Sumir finna meira fyrir keppnisskapinu en aðrir,“ segir Sigríður Inga og óskar öllum gleðilegra Lummudaga 2012 að endingu.

Dagskrá Lummudaga 2012 má finna í nýjasta tölublaði Feykis og Sjónhornsins. Hér er einnig hlekkur á dagskránna.

Fleiri fréttir