Lummudagar settir og ljómandi góð veðurspá

Það var líf og fjör í Litlaskógi á Sauðárkróki í gærkvöldi þegar Lummudagar voru formlega settir. Þar var farið í leiki, bragðað á fiskisúpu frá FISK og fjölskyldur nutu samverunnar í náttúrunni.

Í dag er mikið um að vera en dagskrá dagsins byrjaði með því að boðið var upp á Lummukaffi hjá versluninni Eyri og leikskólanum Ársölum, hjá yngra stigi. Eldra stigið verður svo með Lummukaffi á milli kl. 14-15 og einnig er hægt að bregða sér í kaffi og lummur hjá Sjóvá og Markvert frá kl. 14-16.

Sápuboltamót verður á fótboltavellinum fyrir neðan Ártún kl. 15. Ratleikur verður í umsjón Skátanna kl. 17 við sundlaug Sauðárkróks en á sama tíma verður 3á3 götukörfuboltamót við Árskóla Skagfirðingabraut.

Hér má skoða Lummudagadagskránna nánar.

Veðurspáin fyrir helgina er eins og best verður á kosið en veðurhorfur til kl. 18 á morgun er austlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Bjartviðri norðan til, stöku skúrir, einkum síðdegis. Hiti 10 til 20 stig.

Hér eru nokkrar myndir frá Litlaskógi og Lummukaffi Ársala.

 

Fleiri fréttir