Lummudagar verða haldnir dagana 27.-30. júní

Lummudagar í Skagafirði standa á tímamótum þetta árið og fagna fimm ára afmæli. Af því tilefni verður hátíðin sérstaklega glæsileg þetta árið, segir í tilkynningu um hátíðina. Dagskráin er ennþá í mótun en að sjálfsögðu verða götuskreytingar, götumarkaður og götugrillin á sínum stað.

Í tilefni þess að Árni Stefánsson íþróttakennari fagnar 60 árum á þessu ári verður haldið Árnahlaup á laugardeginum 29. júní honum til heiðurs. Þrjár hlaupaleiðir verða í boði við allra hæfi. Hægt er að nálgast dagskrá hlaupsins á hlaup.is og http://www.facebook.com/arnahlaup.

Nú er um að gera að taka helgina frá, skipuleggja fjölskylduhitting, bekkjarmót, saumaklúbbshitting o.s.frv. segir í tilkynningunni en þar eru brotfluttir Skagfirðingar hvattir til þess að koma heim þessa helgi og taka þátt í hátíðarhöldunum.

Hafir þú einhverjar hugmyndir sem þú vilt koma á framfæri á Lummudögum eða ef þú vilt koma að framkvæmd hátíðarinnar, endilega hafðu þá samband við framkvæmdastjóra hátíðarinnar Sigríði Ingu Viggósdóttur, sviggosdottir@gmail.com.

Fleiri fréttir