Mættu kolvitlausir í leikina

Körfuboltalið Tindastóls fór frækna för til Stykkishólms um síðustu helgi þegar leikið var til úrslita í Lengjubikarnum. Á föstudaginn sigraði liðið Þór Þorlákshöfn naumlega 82-81 og í úrslitaleiknum daginn eftir voru heimamenn í Snæfelli lagðir með 96 stigum gegn 81. -Þetta var algjör snilld. Að koma heim með bikarinn er þvílík upplifun, sagði Helgi Rafn Viggósson fyrirliði á Mælifelli sl. laugardagskvöld en þar biðu stuðningsmenn eftir liðinu til að fagna heimkomu bikarsins.

-Við mættum kolvitlausir í leikinn á móti Þór Þorlákshöfn á föstudagskvöldið og menn voru allir klárir í hann sem og í leikinn í dag. Þetta var flott liðsheild og menn voru eins og ég segi klárir í þetta verkefni.

Hvernig er að vinna bikarinn en hafa ekkert stig í deildinni?

-Svona er bara lífið. Vonandi fara nú sigrarnir að detta inn í deildinni og við höldum áfram þessari spilamennsku sem við sýndum núna. Við vorum að spila gríðarlega vel, höldum Snæfelli í 81 stigi í dag og Þór einnig í 81 stigi í gær. Þannig að vörnin er að smella og við farnir að spila betri sóknarleik og boltinn farinn að ganga betur á milli manna. Nú er bara að halda sér á jörðinni. Leikur núna á fimmtudaginn næsta á móti Þór Þorlákshöfn hér heima og allir að mæta, segir Helgi sem vill þakka þeim frábæru stuðningsmönnum sem þeir eiga og tóku svo vel á móti þeim þegar bikarinn var borinn í hús.

 

Fleiri fréttir