Magnús Bragi og Óskasteinn með glæsisýningu

Héraðssýning kynbótahrossa hófst í gær á Vindheimamelum en alls eru 160 hross skráð til leiks og munu dómar standa frá mánudegi til föstudags og yfirlitssýning verður haldin laugardaginn 2. júní. Óskasteinn frá Íbishóli vakti mikla athygli í gær en hann fékk 8,90 fyrir hæfileika.

Magnús Bragi Magnússon og Óskasteinn áttu góðan dag í gær en sá síðarnefndi hlaut 9,0 fyrir tölt, brokk, skeið og fegurð í reið og 9,5 fyrir vilja og geðslag. Árni Gunnarsson tók sýninguna upp en ef áhugasamir vilja upptökur af sínum hrossum á Vindheimamelum er síminn hjá Árna 892-7707. Hér fyrir neðan má sjá þá kappa Magnús og Óskastein frá því í gær.

http://www.youtube.com/watch?v=v8LIW0yHUZU&feature=share

Fleiri fréttir