Margt um að vera í Iðjunni

Alþjóðadagur fatlaðs fólks er haldinn 3. desember ár hvert. Hann bar upp á mánudag að þessu sinni og var mikið um dýrðir í Iðju-Hæfingu Aðalgötu 21 á Sauðárkróki en þá var hinn árlegi viðburður „Opið Hús“ í Iðju. Eins og orðið ber með sér var opið hús fyrir gesti og gangandi. Þá eru allir velkomnir að líta inn til okkar í smákökur og jólate, skoða afraksturinn af verkefnavinnu haustsins og fyrri ára og jafnvel versla eitthvað í leiðinni.

Sú hefð hefur skapast hjá okkur að hafa lifandi tónlist á boðstólnum eftir hádegi þennan dag, þ.e. við fáum tónlistarmann/menn til að koma og spila m.a. jólalög til að skemmta gestum, sjálfum sér og okkur. Það hefur skapast góð jólastemning, ýmsir sungið hástöfum og jafnvel tekið sporið. Síðan hafa allir farið glaðir í sinni heim að loknum degi. Í þetta sinn kom til okkar hann Sigvaldi Gunnarsson og tók lagið á gítarinn af miklum myndarbrag  og söng hástöfum eins og honum einum er lagið.  Allir skemmtu sér hið besta, gleðin leyndi sér ekki úr andlitum fólksins okkar og ekki var laust við að fólkið þau væru heldur þreytt þegar haldið var heim á leið.

/Jónína G. Gunnarsdóttir

Meðfylgjandi myndir eru frá starfi Iðjunnar í vetur.

.

Fleiri fréttir