Matís opnar líftæknismiðju á Sauðárkróki
Þriðjudaginn 18. nóvember nk. kl. 16:30 mun Matís ohf. opna líftæknismiðju í Verinu að Háeyri 1.
Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, mun ávarpa athöfnina og að því loknu opna líftæknismiðjuna formlega. Í kjölfar formlegrar opnunar verða fluttir stuttir fyrirlestrar ásamt því sem boðið verður upp á léttar veitingar.
Er það ósk starfsfólks Matís að sem flestir sjái sér fært að mæta og fagna þessum áfanga.
Líftæknismiðjan í Verinu er sérstaklega sett upp til að skapa vettvang fyrir öflugar rannsóknir og þróunarvinnu á sviði líftækni og lífvirkra efna/afurða. Markmiðið er að aðstaða og gæði rannsókna á rannsóknarstofu Matís standist alþjóðlegan samanburð. Lögð verður mikil áhersla á rannsóknir og þróun tengt nýtingu aukaafurða og afurða unna úr þeim, t.d. prótein, peptíð, fitusýrur, sykrur ofl. Á þennan hátt skapast góð tækifæri fyrir myndun nýrra verkefna og jafnvel fyrirtækja á svæðinu sem í kjölfarið stuðlar að auknum fjölbreytileika í atvinnulífi.