Miðasala hafin á Gæruna - 27 tónlistaratriði á þremur dögum
Miðasala á tónlistarhátíðina Gæruna á Sauðárkróki er hafin á midi.is en nöfn þeirra tónlistarmanna og hljómsveita sem stíga á svið á hátíðinni dagana 23. – 25. ágúst nk. voru gerð kunn síðustu viku. Nú er um að gera að tryggja sér miða sem fyrst en Gæruliðar hafa alltaf haft það að markmiði að halda miðaverðinu í lágmarki.
Á hljómsveitarlistanum má sjá fjölmarga flotta tónlistarmenn og hljómsveitir og útlit fyrir sannkallaða tónlistarveislu. Þarna verða 27 tónlistaratriði á þremur dögum, ásamt ýmsum fríðindum sem fylgja miðanum og verða þau auglýst nánar síðar.
Miðinn er á 5000 kr. í forsölu á miði.is en mun kosta 6000 við hurð.
Þeir sem koma fram á Tónlistarhátíðinni Gærunni 23. – 25. ágúst eru:
- Eivør Pálsdóttir
- Dúkkulísurnar
- Gildran
- Dimma
- Skytturnar
- Skúli mennski
- Contalgen Funeral
- Sing for me Sandra
- Brother Grass
- Eldar
- Funk That Shit!
- Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
- Sverrir Bergmann og munaðarleysingjarnir
- Nóra
- Rock to the Moon
- Death by Toaster
- Wicked Strangers
- Art Factory Party
- Beebee and the Bluebirds
Sólóistakvöld 23. ágúst:
- Dana Ýr
- Sóla og Sunna
- Sveinn Rúnar
- Fúsi Ben og Vordísin
- Myrra Rós
- Gillon
- Joe Dúbíus
- Ink City
Hér má sjá kynningarmyndband Gærunnar 2012.