Miðnæturmótinu frestað
Miðnæturmóti Arion banka og Tindastóls sem fram átti að fara í fyrsta skipti 7. - 8. júlí á Sauðárkróki hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Ástæðan er fyrst og fremst sú að nú rekur hvert knattspyrnumótið annað og erfitt að koma nýjum mótum að.
Miðnæturmótið er hugsað sem hraðmót með stuttum leikjum, bæði fyrir stráka og stelpur í 4, flokki og leikið í 11 manna liðum.
Stefnt er að því að mótið fari fram síðar í sumar.