Mikið um að vera hjá Lögreglunni á Sauðárkróki
Verkefni lögreglunnar á Sauðárkróki síðasta sólarhringinn hafa flest verið tengd óveðrinu sem gekk yfir landið. Á heimasíðu hennar segir að ökumenn hafi lent í ófærð á Vatnsskarði, Þverárfjalli og víða á vegum í Skagafirði og voru björgunarsveitir ræstar út til að aðstoða við að koma fólki í öruggt skjól þar sem ekki þótti skynsamlegt að það héldi för sinni áfram á meðan veðrið var sem verst.
Nokkur umferðaróhöpp urðu þar sem tjón varð á ökutækjum en þökk sé öryggisbúnaði, bílbeltum, að ekki varð slys á fólki. Þá fór bifreið útaf Sauðárkróksbraut við bæinn Geitagerði um kl.18:00 og hafnaði útí skurði. Ökumaðurinn slapp með skrámur en bifreiðin er mjög illa farin ef ekki ónýt.
Óskað var aðstoðar vegna skips í Sauðárkrókshöfn sem var að slitna frá bryggju og brugðust björgunarsveitir við því og komu festum í skipið. Stór rúða fauk úr gluggakarmi á húsnæði við Aðalgötu og á sama tíma bárust upplýsingar um að fé á Öxnadalsheiði væri farið að hrekjast undan veðri og fenna í kaf og var boðum þess efnis komið til hlutaðeigandi.
„Lögreglan á Sauðárkróki vill koma á framfæri kæru þakklæti til allra þeirra sem komu að björgunar- og hjálparstörfum í óveðrinu og sérstaklega til þeirra fjölmörgu björgunarsveitamanna, sem eru bæði menn OG konur, sem með fórnfýsi og fagmennsku bregðast við kalli þegar hætta steðjar að. Störf þeirra eru ómetanleg og rétt að minna á að fjáröflun þeirra felst m.a. í sölu á flugeldum um áramót,“ segir á heimasíðu lögreglunnar á Sauðárkróki.