Mikið um að vera hjá tréiðnadeild FNV

Mikið var um að vera hjá tréiðnadeild FNV sl. helgi en þá voru nemendur í helgarnámi í húsasmíði að leggja lokahönd á verkefni vetrarins, sem er 58 m2  sumarhús, byggt í samstarfi við K-TAK h/f. Nemendur smíðuðu einnig eldhúsinnréttingu í samstarfi við Trésmiðjuna Borg h/f. Alls stunda 16 nemendur helgarnámið.

Samkvæmt heimasíðu FNV var hafist handa í byrjun skólaárs í ágúst 2011. Sumarhúsið varð fokhelt fyrir áramót, en smíði á gluggum, hurðum og innréttingum fór fram eftir áramót. Húsið var klætt utan þegar leið að vori og gengið frá þakskeggi.

Dagskólanemendur hafa einnig haft í nógu að snúast en þeir hafa verið að byggja tvö borholuhús fyrir Skagafjarðarveitur, 12,4 m2 , en annað húsið er áttstrent. Auk þess var smíðuð innrétting fyrir ferðaþjónustuaðila í Fljótum.

Verkefnum hefur miðar vel áfram og eru nemendur mjög áhugasamir um að láta verkin ganga vel og húsunum verður skilað í maímánuði,“ segir á heimasíðu FNV.

 

Fleiri fréttir