Minningahöllin á YouTube
Það verður æ algengara að tónlistarfólk komi afurðum sínum á framfæri á YouTube enda auðvelt að nota þann möguleika ef gróðasjónarmið ráða ekki för. Þannig er það hjá Smára Eiríkssyni (Hansen) brottfluttum Króksara og dóttur hans Veroniku Hebu 11 ára sem sömdu lagið Minningahöllin.
Að sögn Smára varð lagið til fyrir vel rúmum 20 árum en það hefur verið í kollinum lengi.
-Textinn varð upphaflega til vegna þess að mig langaði að senda lag í Dægurlagakeppnina í Sæluvikunni sem síðan varð ekkert úr þetta árið, en ég vildi fjalla um Skagafjörðinn svona eins og maður kannski upplifir hann eftir að maður flytur í burtu, segir Smári sem á nokkur lög eftir í kollinum. –Ég hef ekkert skrifað þetta niður þannig að það er soldið djúpt á þeim sumum, segir Smári og vill frekar kalla yrkingarnar textagerð en ljóðagerð. -Varðandi hljóðfæraleik þá er ég óttalegur klaufi á hljóðfæri, en reyni að nota hljómborð og gítar til að glamra á.
Börkur Hrafn Birgisson framkvæmdarstjóri Benzin Musik leikur undir í laginu en hann var gítarleikari í hljómsveitinni Jagúar hér áður fyrr. -Mér finnst spilamennskan hans alveg hrikalega flott, hann er algjör snillingur, segir Smári að lokum.
Það er Veronika Heba sem syngur lagið og gerir það með stakri prýði.
http://www.youtube.com/watch?v=wQERYzGVk5Y&feature=youtu.be