Minnstu bæjarfélögin hrópa út í tómið | Ólafur Adolfsson skrifar

Ólafur Adolfsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. MYND AF ALÞINGI.IS
Ólafur Adolfsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. MYND AF ALÞINGI.IS

Ekki er bjart yfir byggðinni minni
er birtist á glæru frá Deloitte og co
Ég vona að þessari vitleysu linni
og viljann ég fái til að fara á sjó

Með þessari stöku lauk Óðinn Gestsson, framkvæmdastjóri Íslandssögu á Suðureyri, skörpu og brýnu erindi sínu á morgunfundi Samtaka atvinnulífsins um veiðigjöldin en Óðinn stendur í stafni eins þeirra fyrirtækja sem munu verða hvað verst úti þegar skattar verða hækkaðir verulega á sjávarútveginn og byggðarlögin í landinu.

Óðinn er bara einn þeirra fjölmörgu umsagnaraðila sem hafa grátbeðið atvinnuvegaráðherra og ríkisstjórnina að taka tillit til þeirra greininga sem hafa birst á síðustu vikum og sýna hversu illa frumvarpið um veiðigjöld er unnið og hversu mikil áhrif það mun hafa á þau bæjarfélög þar sem minnstu útgerðirnar og vinnslurnar starfa. Útgerðirnar sem Óðinn kallar „öryrkja sjávarútvegarins“ og njóta byggðarkvóta.

Í Norðvesturkjördæmi erum við að tala um sjö byggðir; Drangsnes, Hólmavík, Patreksfjörð, Tálknafjarðar, Flateyri, Suðureyri og Þingeyri. Óðinn hefur verið í miklu samtali við okkur þingmenn Norðvestur en mætt að eigin sögn litlum skilningi hjá stjórnarliðunum í kjördæminu. Það er aldrei gott þegar að þínir eigin þingmenn sem geta haft áhrif vilja ekki hlusta á fólkið sitt eða halda uppi vörnum fyrir samfélögin.

Hækkunin sem fylgir þessari skattlagningu er of mikil til að þessi minnstu fyrirtæki geti rekið sig réttum megin við núllið. Það er mat Óðins að þessi fyrirtæki, sem hafa fjölda manns í vinnu, fari að hverfa eitt af öðru um mitt næsta ár. Ríkisstjórnin reyndi í uppfærslu á frumvarpinu að koma til móts við minni útgerðir en samt sem áður er staðan svona. Þetta sýnir bara hversu hroðvirknislega þetta var unnið frá upphafi.

Ef veiðigjöldin hækka án tillits til rekstrarforsenda og staðbundinnar viðkvæmni, þá munu þessar byggðir okkar verða undir. Fyrirtæki sem styrkt hafa verið með byggðakvóta og náð að kveikja von íbúa um varanleg störf hafa ekki bolmagn til að bera taprekstur og munu leggja upp laupana. Óhjákvæmilegur fylgifiskur þess er að störf hverfa er hættan á að fólkið gefist einnig upp og hverfi á braut.

Ég kalla áfram eftir því að atvinnuvegaráðherra og ekki síður stjórnarþingmenn í Norðvesturkjördæmi taki samtalið við fyrirtækin og fólkið í byggðunum og það má auðvitað einnig segja um Norðausturkjördæmi þar sem má finna sex önnur byggðarfélög sem falla undir sama hatt. Það þýðir ekki að vera kjörinn á þing í umboði fólksins í dreifbýlis kjördæmunum og loka svo bara eyrunum þegar að það hentar.

Að lokum vil ég leyfa mér að óska hetjum hafsins til hamingju með sjómannadaginn þó blikur séu óneitanlega í lofti.

Ólafur Adolfsson
Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi

Fleiri fréttir