Mygla mælist ítrekað í leikskólanum á Hofsósi

Austurgata 5 á Hofsósi. Mynd: Google.
Austurgata 5 á Hofsósi. Mynd: Google.

„Eðlilega eru menn hugsi yfir leikskólamálum á Hofsósi og svo sannarlega væri óskandi að við hefðum úr fleiri úrræðum að spila en nú er,“ segir Herdís Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs Svf. Skagafjarðar en sem kunnugt er var búið að ákveða að flytja leikskólann tímabundið í húsnæði í eigu sveitarfélagsins að Austurgötu 5 en síðar hætt við vegna andstöðu nágranna.

Farið var í framkvæmdir við breytingar á húsnæði Austurgötu 5 svo koma mætti leikskólanum þar fyrir en sú ákvörðun mæltist þó ekki vel fyrir og á fundi Skipulags- og byggingarnefndar sveitarfélagsins þann 12. janúar sl. var bráðabirgðaleyfi til tveggja ára til notkunar á húsnæðinu fyrir leikskóla afturkallað.

„Það má því segja að málið sé aftur komið á byrjunarreit og leit stendur yfir að hentugu húsnæði til að flytja leikskólann tímabundið í á meðan framkvæmdir að nýjum leikskóla standa yfir. Sem kunnugt er hefur ítrekað mælst mygla í núverandi húsnæði leikskólans og óvíst hve útbreidd hún er. Við þær aðstæður þykir ekki ráðlegt að hafa leikskólann þar sem hann er nú mikið lengur og er því leitað allra leiða til að komast í annað húsnæði til bráðabirgða,“ segir Herdís.

Á fundi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra sem haldinn var í síðustu viku var heilbrigðisfulltrúa falið að kynna Sveitarfélaginu niðurstöður eftirlits sem fram fór þann  6. janúar sl. og ítreka tilmæli frá 3.10  sl. en eftirfarandi var bókað:

„Í kjölfar frétta af því að óvissa yrði með flutning leikskólans á Hofsósi í nýtt húsnæði, þá var gerð athugun á myglu í húsnæðinu þann 6. janúar sl. Athugun leiddi í ljós mygla var til staðar í húsnæðinu, en 9 mygluþyrpingar uxu upp af ætisskál í matsal og 4 mygluþyrpingar uxu upp af ætisskál í gangi undir stigaopi upp á háaloft. Húsnæðið er því ekki í samræmi við IV kafla í reglugerð um hollustuhætti 941/2002.

Heilbrigðiseftirlitið ítrekar því tilmæli frá 3.10.2016 um að hraðað verði sem nokkur kostur er endurbótum á húsnæðinu eða þá finna starfseminni annað húsnæði. Óskað er eftir því að Sveitarfélagið upplýsi Heilbrigðisnefndina um stöðu málsins fyrir næsta fund nefndarinnar sem áætlað er að verði fimmtudaginn 16. febrúar nk.“

Herdís segir að verið sé að teikna nýjan leikskóla og er vonast til að hægt verði að hefja verkið á vormánuðum og ljúka því snemma árs 2018. „Það er sannarlega vilji til að finna leikskólanum viðeigandi húsnæði í þann tíma sem tekur að byggja nýtt húsnæði en að sjálfsögðu þarf bráðabirgðahúsnæði að uppfylla öll skilyrði fyrir starfsemi af þessu tagi og að sjálfsögðu þarf húsnæðið einnig að vera boðlegt bæði börnum og starfsfólki.“

Fleiri fréttir