Ná Tindastólsmenn að bæta sinn besta árangur í næst efstu deild?
Þunnskipað lið mætir Þrótti á laugardaginn kl. 14:00 þegar Tindastólsmenn skjótast í heimsókn á Valbjarnarvöllinn í síðustu umferð 1. deildar. Tólf kappar eru klárir í slaginn og því ljóst að stuðningsmenn Tindastóls verða að fjölmenna í Laugardalinn og styrkja strákana með hrópum og köllum.
Steven Beattie kemur aftur inn í lið Tindastóls en hann var meiddur á laugardaginn. Tveir til viðbótar koma aftur inn í hópinn eftir að hafa tekið út leikbann, Loftur Páll og Árni Einar, en Ingvi Hrannar og Arnar Skúli verða aftur á móti í banni á laugardaginn eftir að hafa fengið að skoða spjöld í leiknum gegn Þór.
Á heimasíðu Tindastóls er sagt frá því að ef strákarnir vinna leikinn á laugardaginn gegn Þrótti þá ná þeir í fleiri stig en Tindastóll hefur nokkurntíman náð í 1.deild. Besti árangur í sögu Tindastóls er 6.sæti 1.deildar árið 1988 en þá fékk liðið 23 stig undir stjórn Bjarna Jóhannessonar ofurþjálfara. Reiknimeistara Stólanna telst til að þetta geri 1,27 stig á leik en á þessum árum voru 10 lið í næst efstu deild. Nú er liðin 12 og ef sigur vinnst á Þrótti þá ku Stólarnir hafa krækt í 1,36 stig að meðaltali í leik á þessu tímabili.
Það er því nokkuð ljóst að áhugamenn um meðaltöl og vísindalega útreikninga bíða spenntir eftir leiknum á laugardaginn. Áfram Tindastóll!