Nauðgun í heimahúsi á Króknum

Ruv.is greinir frá því að Lögreglunni á Sauðárkróki var tilkynnt um nauðgun aðfararnótt laugardags þegar kona hringdi og sagði að hjá sér væri vinkona sem hefði orðið fyrir nauðgun í heimahúsi í bænum.

Lögreglan á Sauðárkróki fékk símhringingu klukkan liðlega sex á laugardagsmorgun frá konu sem sagði að hjá sér væri vinkona sem orðið hefði fyrir nauðgun í heimahúsi í bænum.

Lögreglan fór á staðinn, fékk frásögn konunnar af atburðum og upplýsingar um meintan geranda fór svo í húsið, fann þar manninn sofandi og tók af honum skýrslu. Konan og maðurinn, sem eru bæði um tvítugt, höfðu hist í samkvæmi fyrr um kvöldið.

Konan var færð á heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki þar sem hún fékk fyrstu hjálp og í framhaldinu var farið með hana á neyðarmóttöku á Akureyri.

Fleiri fréttir