Nemendur fá litabók um Eldvarnir heimilanna
Lionsklúbburinn Björk afhenti nemendum í 2. bekk Árskóla litabók um Eldvarnir heimilanna í gær, miðvikudaginn 21. nóvember. Að sögn Erlu U. Sigurðardóttir í er tilgangur gjafarinnar að virkja börnin sem eins konar „brunaverði heimilanna“ með forvarnarstarf í huga.
Áhugasamir nemendur Árskóla læra um Eldvarnir heimilanna.
„Kári Gunnarsson varaslökkviliðsstjóri var með í för og sá um að kynna efni bókarinnar fyrir krökkunum sem voru mjög áhugasöm og greinilega vel með á nótunum,“ sagði Erla.
Lionsklúbburinn vill koma á framfæri þakkir til starfsmanna Árskóla og Brunavarna Skagafjarðar.