Ný heimasíða KS opnuð á Lífsins gæði og gleði
Kaupfélag Skagfirðinga opnaði nýja heimasíðu formlega á atvinnulífssýningunni Lífsins gæði og gleði um hádegisbilið á laugardaginn.
Bjarni Maronsson stjórnarformaður KS bar heiðurinn af opnun hinnar nýju síðu en þar má finna ýmsar upplýsingar um fjölþætta starfsemi fyrirtækisins, ásamt fréttum. Þar geta viðskiptamenn kaupfélagsins einnig skráð sig inn og fylgst með viðskiptum sínum, t.d. færslum á reikningum.
Síðuna má skoða hér.