Ný spennusaga frá Merkjalæk

Út er komin bókin Innbrotið eftir Sigurð H. Pétursson, fyrrverandi héraðsdýralækni í Austur-Húnavatnssýslu. Það er Bókaútgáfan Merkjalækur í Austur-Húnavatnssýslu sem gefur bókina út.

Sögusvið Innbrotsins er hið sama og í bókinni Út í nóttina sem kom út hjá Merkjalæk á síðasta ári. Sögurnar gerast í afskekktu hérðaði á Norðurlandi, í sjávarþorpinu Sandvík og sveitunum í kring. Persónurnar eru sumar hverjar þær sömu en einnig koma nýjar persónur til sögunnar.

Á baksíðu segir: „Láki lögga fær það verkefni að komast að því hver eða hverjir brutust inn hjá mikils metnum hjónum í Sandvík og finna mikil verðmæti sem stolið var.
Í fyrstu virðist málið vera augljóst og ekki þurfi annað en að hnýta nokkra lausa enda og senda svo málið til Ríkissaksóknara.
En ekki er sopið kálið þó í ausuna sé komið.
Málið ætlar að verða Láka erfiðara en honum virtist í fyrstu. Óvænt atvik koma upp og lengi vel virðist sem Láka takist ekki að leysa málið enda kemur lausnin á óvart í lok bókarinnar.“

Innbrotið er 202 blaðsíður og hentar bæði ungum sem gömlum, að því er segir á bókarkápu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir