Nýjar reglur um Hvatapeninga

Samþykkt var á fundi sveitarstjórnar Svf. Skagafjarðar að breyta reglum um Hvatapeninga vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna í sveitarfélaginu. Verið er að laga reglurnar að upptöku nýs skráningakerfis í gegnum Nóra, sem tekið var upp um síðustu áramót. Skilyrði þess að hægt sé að nýta Hvatapeningana er að um skipulagt íþrótta-, lista- eða æskulýðsstarf sé að ræða og sé stundað undir leiðsögn þjálfara, leiðbeinenda eða kennara.

Þetta á við um allt skipulagt íþrótta- og æskulýðstarf sem stundað er á vegum viðurkenndra íþróttafélaga, tónlistarskóla, skáta og önnur námskeið skipulögð af frístundasviði Sveitarfélagsins Skagafjarðar, sbr. Sumar-TÍM.

Á vef sveitarfélagsins segir að hægt sé að nýta Hvatapeningana til að greiða niður æfinga- eða þáttökugjöld í skipulögðu íþrótta-, lista- og æskulýðsstarfi en réttur til Hvatapeninga fyrir árið 2017 fellur niður í árslok. Ónýttir Hvatapeningar nýtast ekki milli ára. 

Fleiri fréttir