Nýnemadagar í Hólaskóla

Nú stendur fyrsta vika nýs skólaárs yfir hjá Hólaskóla og voru nýnemar í öllum deildum eru kvaddir heim að Hólum til að kynna fyrir þeim það sem framundan er, og styðja þá fyrstu sporin í náminu.  

Á heimasíðu segir frá því þegar slegið var á léttari strengi í góða veðrinu í gærkvöldi var og tíminn nýttur til að hrista hópinn saman og um leið að kynna Hólastað fyrir nýnemunum.

Það voru staðnemar í 3. árs námskeiðinu Útivist og upplifun, undir leiðsögn Pálínu Ó. Hraundal, sem héldu utan um þessa dagskrá. Pálína tók nokkrar myndir sem má sjá á heimasíðu skólans.

Fleiri fréttir