Nýprent Open verður á sunnudaginn
Barna- og unglingamótið Nýprent Open verður haldið sunnudaginn 1. júlí nk. á Hlíðarendavelli á Sauðárkróki. Mótið hefst kl. 08:00, og verða elstu krakkarnir ræstir út fyrst og yngstu síðast. Ræst verður í tvennu lagi og verðlaunaafhending verður einnig í tvennu lagi.
„Mótið er fyrir alla, byrjendur sem lengra komna,“ segir í fréttatilkynningu frá Golfklúbbi Sauðárkróks. Mótið er flokkaskipt og kynjaskipt.
Flokkarnir eru þessir:
- 17-18 ára drengir og stúlkur – 18 holur
- 15-16 ára drengir og stúlkur – 18 holur
- 14-ára og yngri drengir og stúlkur – 18 holur
- 12 ára og yngri drengir og stúlkur sem spila 9 holur
- Byrjendaflokkur drengir og stúlkur spilar 9 holur af sérstaklega styttum teigum
Opnað hefur verið fyrir skráningu á www.golf.is. Nándarverðlaun verða veitt og vippkeppni í öllum flokkum.Viðurkenning fyrir flesta punkta með forgjöf á 18 holum í drengja- og stelpuflokkum, virk forgjöf er skilyrði.
Mótsgjald er 1.500 kr. en ókeypis verður í mótið fyrir félaga GSS.