Nýr vígslubiskup vígður á Hólahátíð 2012

Árleg Hólahátíð á Hólum í Hjaltadal verður haldin um næstu helgi, 10. - 12. ágúst. Hátíðin í ár markast af því að á sunnudeginum verður vígður nýr Hólabiskup. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, vígir þá séra Solveigu Láru Guðmundsdóttur sem kjörin hefur verið vígslubiskup.

Á Hólahátíð gefst tækifæri til að taka þátt í helgihaldi, fræðsludagskrá og til að hreyfa sig og kynnast um leið gömlum þjóðleiðum, sem pílagrímar fóru á leið sinni heim að Hólum eða í ár sögulegri leið sem sjaldan er farin, taka þátt í helgihaldi og fá fylgd góðra leiðsögumanna og fararstjóra.

Föstudagur 10. ágúst

Dagskrá Hólahátíðar hefst föstudagskvöldið 10. ágúst með fyrirlestri í Auðunarstofu kl. 20:00. Þar flytur Ragnheiður Þórsdóttir erindi um vefnað til forna við kljásteinsvefstól sem þar hefur verið settur upp.

Laugardagur 11. ágúst

Laugardagurinn er útivistar-, fræðslu- og grilldagur. Þá eru í boði þrjár göngur, dagskrá í kirkjunni á vegum Sturlungaslóðar og grillveisla um kvöldið. Þrjár göngur eru í boði á laugardeginum annars vegar tvær 8-9 klukkustunda leiðir og hins vegar styttri helgiganga í Gvendarskál þar sem vígslubiskup messar. Löngu gönguferðirnar eru um Heljardalsheiði og ný ganga frá Flugumýrarkirkju að „felustað frúarinnar á Hólum“, Helgu Sigurðardóttur, fylgikonu Jóns biskups Arasonar.

Gvendarskál. Lagt af stað kl. 11:00 frá anddyri Hólaskóla og gengið í Gvendarskál þar sem sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson vígslubiskup Hólastiftis syngur stutta pílagrímamessu við altari Guðmundar góða. Þetta er eitt af síðustu embættisverkum sr. Jóns í embætti vígslubiskups.

Heljardalsheiði. Gengin verður gömul þjóðleið úr Svarfaðardal yfir Heljardalsheiði. Lagt verður upp frá Atlastöðum í Svarfaðardal kl. 9.30 laugardaginn 11. ágúst en sætaferð verður þangað frá Hólum kl. 7 fyrir þau sem það kjósa. Reiknað er með átta stunda rólegri göngu. Farartálmar eru ekki á leiðinni en fólk verður aðstoðað yfir Kolbeinsdalsá og til Hóla. Nauðsynlegt er þó að vera vel útbúinn og vel  skóaður. Farar­stjóri yfir Heljardalsheiði verður sr Guðrún Eggertsdóttir.

Felustaður frúarinnar. Pílagrímaganga frá Flugumýrarkirkju að „felustað frúarinnar á Hólum“, Helgu Sigurðardóttur, fylgikonu Jóns biskups Arasonar. Mæting er við Flugumýrarkirkju kl. 9.

Áætluð tilhögun:

Þátttakendur safnast saman í Flugumýrarkirkju. Kirkjan skoðuð og síðan er fjallað nokkuð um Helgu Sigurðardóttur og dvöl hennar í felum sumarið 1551. Síðan er gengið upp með Hvammsá inn Flugumýrardal og upp í Húsgilsdrag að baki Glóðafeykis þar sem talið er að Helga hafi leynst í u.þ.b. 600 m hæð. Þar skoðar fólk sig um og hvílir lúin bein. Þeir sem eru fótfráir geta síðan gengið á topp Glóðafeykis en ferðaáætlun gerir ráð fyrir bakaleið miðhlíðis í Glóðafeyki norðanverðum og niður á Virkishól (sem þekktur er úr Sturlungu) beint fyrir ofan Flugumýrarkirkju. Í góðu veðri er óvarlegt að reikna með skemmri tíma en 6 klst en í kalsa gengur fólk hraðar og stoppar minna á göngunni. Leiðsögumaður er Þórarinn Magnússon, bóndi á Frostastöðum.

Þátttaka í lengri göngurnar tilkynnist til  malfridur@holar.is

Hóladómkirkja kl.16:00 Félagið Á Sturlungaslóð Söguslóð stendur fyrir dagskrá í dómkirkjunni. Björn Vigfússon flytur erindi. Laufey Guðmundsdóttir syngur. Að erindi loknu sýnir Sigríður Sigurðardóttir söguskilti við Víðines í Hjaltadal. Á sama tíma verða leikir fyrir börnin.

Að loknum göngum verður tekið á móti pílagrímum í Hóladómkirkju með kvöldsöng klukkan 18. Um kvöldið kl. 19:30 verður síðan grillveisla í Hólaskóla.

Sunnudagur 12. ágúst

Dagskrá sunnudagsins hefst með morgunsöng í Hóladómkirkju klukkan 9 og síðan verður dagskrá í Auðunarstofu kl. 11:00 með opnun sýningar um Guðbrand Þorláksson biskup. Ragnheiður Traustadóttir kynnir.

Hátíðarmessa verður í Hóladómkirkju kl. 14. Biskup Íslands frú Agnes M. Sigurðardóttir vígir séra Solveigu Láru Guðmundsdóttur til biskups í Hólastifti. Kórar Hóladómkirkju og Möðruvallaklausturskirkju syngja. Organistar og kórstjórar Sigrún Magna Þórsteinsdóttir og Jóhann Bjarnason. Kirkjukaffi að lokinni messu.

/Fréttatilkynning

 

Fleiri fréttir